top of page

Ferðaskilmálar

Bókanir og greiðslur:

Hægt er að bóka ferð með Hjólaferðum.is í gegnum internetið eða í gegnum síma 001-585-223-3269. Svo að bókun teljist gild er nauðsynlegt að greiða staðfestingargjald við pöntun US $ 500 pr. mann.  Ferð  skal greidd að fullu 30 dögum fyrir brottför.

Tekið er við helstu greiðslukortum .

Ferð er staðfest um leið og lágmarksfjöldi farþega hefur staðfest bókun sína. Ef lágmarksfjölda er ekki náð sex vikum fyrir brottför er ferð aflýst. Ef hætta verður við ferð af hálfu Hjolaferða.is, skal farþega endurgreidd ferðin að fullu. Um endurgreiðslu flugfars gilda reglur Icelandair. Þá er farþegum bent á að kynna sér forfallatryggingar tryggingarfélaga og þær tryggingar sem innifaldar eru sé ferð greidd með greiðslukorti.

Hjólaferðir.is áskilja sér rétt til að halda hluta af greiðslu ferðar við eftirfarandi aðstæður:
Staðfestingargjaldi ef farþegi hættirr við ferð 60-51 dögum fyrir brottför
50 % af verði ferðar, ef farþegi hættir við ferð 50 – 41 dögum fyrir brottför,
75 % af verði ferðar, ef farþegi hættir við ferð 40- 31 dögum fyrir brottför og
100 % af verði ferðar, ef farþegi hættir við ferð innan 30 daga fyrirvara. 
 

Verð og verðbreytingar:

Hjólaferðir.is leitast við að tryggja þau verð sem birtast á vefsvæði þeirra byggist á réttum útreikningum og séu endanleg verð ferða. Hjólaferðir.is  áskilja sér þó rétt til leiðréttinga á verði eða endurgreiðslu ferðar í tilfellum þar sem rangt verð birtist vegna villu í uppsetningu eða af öðrum tæknilegum ástæðum. Ennfremur áskilja Hjólaferðir.is sér rétt til þess að breyta verði ferðar vegna breytinga á gengi þess gjaldmiðils sem á við um tiltekna ferð.

Ferð sem er að fullu greidd tekur þó ekki slíkum verðbreytingum og sé ferðin greidd að meiru en hálfu en þó ekki að fullu tekur ferðin verðbreytingum að 50% hluta.
Þá taka Hjólaferðir.is enga ábyrgð á þeim kostnaði sem til kann að falla vegna ófyrirsjáanlegra breytinga á flugi eða öðrum samgöngum í ferð.


Afturköllun eða breytingar:

Hjólaferðir.is áskilja sér rétt til þess að breyta dagskrá ferðar eða aflýsa henni með öllu vegna veðurs eða annarra ófyrirsjáanlegra aðstæðna, s.s. stríðsástands, smitsjúkdómahættu eða verkfalla, til þess að tryggja öryggi farþega og starfsfólks.

Að sama skapi er farþega heimilt að afturkalla farpöntun vegna samsvarandi þátta, s.s. stríðsaðgerða, lífshættulegra smitsjúkdóma eða annarra hliðstæðra tilvika sem hafa afgerandi áhrif á framkvæmd ferðar þegar a.m.k. 14 dagar eða færri eru til brottfarar. Í slíkum tilvikum ber ferðaskrifstofu að endurgreiða allt fargjaldið að frádregnu staðfestingargjaldi. Þetta gildir þó ekki ef farþegi hefði mátt sjá fyrir um ofangreinda atburði og ástand er samningur var gerður.


Skyldur þátttakenda:

Farþegar skulu hlíta fyrirmælum fararstjóra eða starfsfólks þeirra aðila sem Hjólaferðir.is skipta við. Farþegi skal einnig hlíta lögum og reglum opinberra aðila í þeim löndum sem hann ferðast um, taka tillit til samferðarmanna sinna og hlíta þeim reglum er gilda á flutningatækjum, áningarstöðum (flughöfnum o.þ.u.l.), gisti- og matsölustöðum o.s.frv., enda ber hann ábyrgð á tjóni sem hann kann að valda með framkomu sinni.

Brjóti farþegi af sér í þessum efnum eða gefi við upphaf ferðar tilefni til þess að ætla að hann verði samferðafólki sínu til ama með framkomu sinni, er ferðaskrifstofu heimilt að hindra hann í að hefja ferð sína eða halda henni áfram og verður hann þá að ljúka henni á sinn kostnað, án endurkröfuréttar á hendur ferðaskrifstofu.

Gert er ráð fyrir að þátttakendur í hópferðum séu heilir heilsu þannig að ekki sé hætta á að þeir valdi öðrum óþægindum eða tefji ferðina vegna sjúkdóms. Ef farþegi veikist í hópferð ber hann sjálfur ábyrgð á kostnaði sem af því kann að hljótast sem og kostnaði við heimferðina. Farþegi á ekki rétt til endurgreiðslu þó hann ljúki ekki ferð af þessum ástæðum eða öðrum, sem ferðaskrifstofunni verður ekki um kennt. Farþegum er bent á að kynna sér skilmála Tryggingastofnunar ríkisins


Vandamál:

Komi upp einhver vandamál í ferð skal umsvifalaust gera fararstjóra viðvart sem reynir að greiða úr vandanum og leysa hann á staðnum. Takist það ekki getur farþegi sent skriflega kvörtun um málið til Íslenskra fjallaleiðsögumanna eins fljótt og unnt er og í síðasta lagi innan mánaðar frá því að ferð lauk, annars verða hugsanlegar bótakröfur ekki teknar til greina. Komi farþegi ekki umkvörtunarefni sínu á framfæri við fararstjóra meðan á ferð stendur fyrirgerir farþegi rétti sínum til hugsanlegra bóta.


Farangur:

Farangur er ekki fluttur með bíl á milli gististaða, þannig að hver og einn flytur farangur sinn í hjólatöskum á böglabera hjólsins.

Hjólaferðir.is taka enga ábyrgð á skemmdum sem kunna að verða á farangri hvort heldur í flugi eða öðrum farartækjum. Verði farþegi var við skemmdir á farangri sínum eftir flug ber að fá skriflega skýrslu frá þjónustuaðila flugfélagsins á viðkomandi flugvelli. Það er svo á ábyrgð flugfélagsins að greiða bætur vegna skemmda á farangri. Láti farþegi ekki gera tjónaskýrslu fást engar bætur. Hjólaferðir.is firra sig allri ábyrgð í þeim tilfellum sem farangur tapast eða berst farþega seint.

bottom of page