top of page

Moseldalur í Þýskalandi   2015                   

                                                       verð 168.500 kr  (2 í herb.)  (flug ekki innifalið)

 



Ein af fjölförnustu hjólreiðaleiðum í  Evrópu liggur meðfram Móselánni frá Trier til Koblenz í Þýskalandi . Leiðin er samtals um 200 km um bugður og beygjur, þar sem ýmist eru þorp og bæir eða ber við himin á hæðum og ásum vöxnum vínviði gamla kastala og kirkjur . Byggð hefur verið á þessu svæði í árþúsundir og víða má sjá byggingar allt frá dögum Rómverja. Gist er á þægilegum hótelum og gistihúsum. Farangur er ekki fluttur með bíl á milli gististaða, þannig að hver og einn flytur farangur sinn í hjólatöskum á böglabera hjólsins. Þetta er ferð sem hentar öllum sem á annað borð geta hjólað, en hafa verður í huga, að þátttakendur þurfa að vera vanir að sitja hjól í nokkra klukkutíma á dag. Leiðin er nánast flöt eða örlítið niður á við og dagleiðirnar eru um 50 km.

26. júlí - 1. ágúst 2015  

 

Dagur 1

KEF-Koblenz

Brottför frá Keflavík kl. 07.25 og lending í Frankfurt kl. 12.50 að staðartíma, þaðan tökum við lest til Koblenz. Eftir að hafa skráð okku inn á hótel, stillum við hjólin og prufum þau með því að hjóla að Das Deutsche Eck, þar sem Mosel og Rín mætast.

Kvöldverður kl. 19.30.

 

Dagur 2.
Koblnz - Trier
Eftir morgunverð og hjólum á lestarstöðina í Koblenz og tökum lest til Trier.   Þangað komum við um hádegi  og eftir að hafa snætt hádegisverð og komið okkur fyrir á Hótelinu, höldum í skoðunar ferð um í Trier og skoðum m.a. Porta Nigra (Svarta port) sem í dag er stæsta rómanska borgarhlið norðan Alpafjalla, dómkirkjuna sem Konstantín mikli byggði o.fl.

Kvöldverður kl. 19.30.

 

Dagur 3 (ca. 50 km)

Trier til Piesport

Eftir morgunver leggjum við af stað kl. 08.00 og og höldum niður með Moselánni. Næstu daga liggur leiðin gegnum vínræktarhéröð og smábæi. Við stoppum á leiðinni til að borða hádegisverð og fá okkur kaffisopa o.fl..

Kvölderður kl. 19.30.

 

Dagur 4 (ca 59 km)

Piesport til Zell an der Mosel

Og áfram höldum við niður með Mosel, um vínræktarhéröð þar sem fræga Móselvínið verður til og sögulegar menjar eru á hverju strái. Við stoppum á leiðinni til að borða hádegisverð og fá okkur kaffisopa o.fl..

Kvöldverður kl. 19.30.

 

Dagur 5 (ca. 50 km.)

Zell an der Mosel til Treis-Karden

Enn stígum við hjólin niður með Mósel annað hvort á vinstri eða hægri bakkanum. Vínrækt í hlíðum og gamlar byggingar innanum. Við stoppum á leiðinni til að borða hádegisverð og fá okkur kaffisopa o.fl..

Kvöldverður kl. 19.30.

 

Dagur 6 (ca 40 km.)

Treis-Karden til Koblenz

Fallegir víngarðar og falleg hús vera á vegi okkar á síðasta degi okkar í Móseldalnum. Seinnipart dags komum við til Koblenz og skoðum okkur betur um þar. Við stoppum á leiðinni til að borða hádegisverð og fá okkur kaffisopa o.fl..

Kvöldverður kl. 19.30.

 

Dagur 7

Heimfeð frá Koblenz

Laus dagur í Koblenz fram til kl. 16.00Skemmtileg ferð tekur enda. Nú er komið að heimferð, þar sem farið verður til Frankfurt með lest, en brottför þaðan er kl. 22.30. Lent í Keflavík kl. 01.00 að staðartíma.)

 

Innifalið:

6 gistinætur.

6 morgunverðir.

6 kvöldverðir.

3 lestarferðir.

Hjól i 6 daga.

Fararstjórn og fylgd.

Hjólakort.

 

Ekki innifalið:
Flug, drykkir með mat, hádegisverðir, kaffi og drykkir í ferðinni, aðgangur að söfnum og annari afþreyingu.

Ath: að ferðin er ekki trússuð og þurfa allir að hafa farangur sinn í hjólatöskum á böglabera. Hver og einn er ábyrgur á sínu hjóli.
 

bottom of page